Verðskrá
Myndatökur
Til þess að bóka tíma þarf að greiða 10.000 kr í staðfestingargjald sem fer upp í kostnað myndatökunnar. Staðfestingargjald er óafturkræft.
Myndirnar eru afhentar í gegnum vefgallerí þar sem viðskiptavinur getur hlaðið þeim niður í bæði prent og netupplausn í lit og svarthvítu.
Prentanir eru ekki innifaldar í verðinu. Afhendingartími er 2-3 vikur.
Nýburamyndataka
Nýburamyndatökur fara fram á fyrstu 2 vikum barnsins.
Myndataka A 85.000 kr
Myndataka af nýburanum, ég miða við ca 2 bakgrunna í þessari myndatöku þar sem nýburanum er stillt krúttlega upp á taubakgrunni. Myndatakan inniheldur 10 stafrænar myndir sem afhendast í bæði lit og svarthvítu.
Systkinamynd á gæru. 5.000 kr aukalega með myndatöku A
Hvenær á að panta tíma? Ég tek við bókunum á meðgöngu, Settur fæðingardagur er notaður sem viðmið. Foreldrar láta mig svo vita sem fyrst eftir að barnið fæðist og þá finnum við tíma í tökuna sjálfa.
Einnig er að sjálfsögðu alltaf hægt að hafa samband þegar barnið er komið í heiminn og kanna hvort ég komi að töku ef þið hafið ekki verið búin að tryggja ykkur tíma.
Tíminn er einungis tryggður hafi bókunargjald verið greitt.
Bumbumyndataka - Studio
Pakki A: Mini myndataka
3 myndir - 32.000 kr. ( einn bakgrunnur)
Pakki B:
5 myndir - 39.000 kr.
Góður tími fyrir bumbumyndatöku er ca frá 32-36 viku meðgöngu.
Barna og fjölskyldumyndataka - Studio
Pakki A: Mini myndataka
3 myndir - 26.000 kr. ( einn bakgrunnur)
Pakki B:
7 myndir - 39.000 kr.
Pakki C:
12 myndir - 55.000 kr.
Það er allur tími góður í barnamyndatöku, en það er sérstaklega gaman að koma með börnin í myndatöku eftir að að þau hafa náð ákveðnum tímamótum í þroska, svo sem þegar þau eru byrjuð að brosa, liggja vel á magnaum og halda höfði vel uppi, þegar þau eru farin að sitja sjálf og svo þegar þau eru farin að standa sjálf.
Fermingarmyndataka / Stúdentsmyndataka
Pakki A: Mini myndataka
3 myndir - 26.000 kr. ( einn bakgrunnur)
Pakki B:
Myndataka í studio.
7 myndir - 39.000 kr.
Pakki C:
Myndataka utan studio (utandyra eða t.d í Hörpu).
15 myndir - 54.000 kr.
Pakki D:
Mini myndataka í studio auk mynda utan studio (utandyra eða t.d í Hörpu).
15 myndir þar af 3 í studio - 59.000 kr.
Algengast er að koma í fermingarmyndatöku
nokkrum vikum fyrir sjálfa ferminguna.
